Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Með appelsínu í einni...

 Og Sænska þjóðfánann í hinni gekk ég niður hamrahlíðina og söng hástöfum : HANN  ER KOMINN ÞESSI DAGUR, SEM GEFUR OKKUR SÓL Í HJARTA....   Svo kunni ég nú ekki meira af laginu og lallalalaði Whistlingbara restina.     En eftir að Hafsteinn beinti mér á að ég væri með "plummer" þegar ég var að renna mér aftur á bak niður skaflinn gafst ég hreinlega upp.   Þetta var greinilega ekki minn dagur og einhvern veginn varð ég bar að sætta mig við það að allir þurfa að vera asnalegir einhvern tímann, og þetta voru mínar 15 mín.   Þá eru þær búnar.   Hjálmurinn passaði ekki einu sinni á mig og táfýlann var ógurleg.   Dóttir mín var hálfpartinn feginn að fá bara að fara inn, hún bara var komin með upp í kok....   æpti í sífellu " MAMMA VILTU GJÖRA SVO VEL   !!!!"   ég skildi ekkert hvað hún átti við, hélt að ég væri að skemmta öllum og þar á meðal og sérstaklega mér.  ég tók bara prónavestið mitt og fór, heim að baka vöfflur, hvað gæti verið betra.....

 

TAkk fyrir mig   McFlottirass


Síðasta helgi.....

 

Ég kíkti út á Föstud.kvöldi með brósa og vinum hans, það var fínt stoppuðum bæði á krákunni í spjall og líka á kaffi 56 í dillirassatónlist, FÍNT !...  Laugardagskvöldið var ég að vinna í Krákunni, ðökk...ekkert spes, einhver umræðufundur, ekkert að gerast, henntum út um 12 og fórum bara með allt liðið á Kaffi, þar sem sprengihöllinn átti að vera að spila,  allir biðu spenntir, nei..þetta var ekki að gera sig sko, ekki fyrir mig allavega.  Talaði við einhverja útlendinga enga sæta samtUndecided....  Næsta helgi verður miklu betri held ég bara...þá verður gamann gamann gamann......

 

McFlottirass......dansi dansi


Helgin framundan

já ég er  að fara í húsmæðraorlof með Saumaklúbbnum mínum, svo ég missi af þessari svakalegu menningarhelgi sem er framundan.  Kvikmyndahátíð, tónleikar, böll, útlendingar, ókunnugir og kunnugir, afmæli og fleira spennó.  Crying  En vona að þú skemmtir þér vel vinkona og hittir sæta útlendinga til að spjalla við  Wink  eins gott að þú skrifir skýrslu fyrir mig hérna.

Kveðja Súra daðurdrósin Errm


já...nú er bara að æfa sig...

 

Sumir búnir að kaupa efni í grímubúninga, aðrir eru byrjaðir að æfa sporin.

 

Fyrir þá sem ekki vita hvernig diskó dansinn virkar, þá getiði horft á þetta video og lært af því,  ég lofa ykkur að með þessum sporum þá getið þið látið taka eftir ykkur á ballinu !!!

Endilega æfið ykkur heima og komið vel undirbúin á ballið!!!!!!!!!!!!

 

Mcflottirass !!!


þetta er ógeðslega töff lag, og uppáhaldið mitt þessa dagana

http://www.youtube.com/watch?v=Vp7qen5niGw  Love  reign over me

kveðja frá  sætu daðurdrósinnni Kissing 


Nick Pitera....

 

Magnaður gaur, mæli með því að kíkja á myndböndin hans...mjög gamann Wink

 


Tilraun .....

 

Áttum á einhvern hátt að prófa eitthvað sem síðasti fyrirlestur í Mannauðsstjórnun var um.  Ég ákvað að fara auðveldu leiðina og gera bara tilraun með sjálfa mig og kúnnan, þeas.. ég notaði einn dag í það að ná augnsambandi við alla þá sem ég þjónustaði í vinnunni. 

Sem væri nú ekki frásögu færandi nema hvað.

Inn kemur þessi líka fallegi maður,   með grátt í vöngum, vel klæddur, sennilega svona 35-37 ára eitthvað solles.   Ég alveg hljóp á kassann til að geta afgreitt hann og reynt að sanna fyrir sjálfri mér að ég get myndað augnsamband við hvern sem er.   Ég horfði svo í augun á honum og sagði : "Góðan daginn herra"  og brosti mínu blíðasta, og kannski með smá  sona daður look í augunum, allavega brosti hann á móti og sagði : "Sæl fröken" bað svo um það sem hann ætlaði að versla. Ég klára svo afgreiðsluna, læt hann hafa kvittunina og segi : "gjörðu svo vel" hann þakkar þá fyrir sig og snýr sér við.  Ég horfi á eftir honum og sé svo að hann snýr sér við og labbar upp að mér aftur og segir : " ´Það væri þá aldrei að svona falleg stúlka reykti ?"  Ég alveg : "JÚ"  Hann bauð mér að koma með sér út að reykja sem ég og þáði.   Hann spurði mikið um Grundarfjörð og einnig mína hagi, Svo voru sígaretturnar okkar búnar og komið var að kveðjustund. Hann biður þá um símanúmerið mitt og spyr hvort hann megi ekki hafa samband við tækifæri.   PlAHahaHHAHA...  erum við að grínast.......

Love my job skilurru !!!!!!

 

McFlottirass.......really really flottirass sko!!!!!!!!!!!


Gleðilegan Valentínusardag, eða

Angry 

Á morgun er Valentínusardagur, og þar sem ég var að fletta Háskóladagbókinni þá sá ég sem sagt lista yfir hvaða stjörnumerki eiga best saman sem elskhugar, svo samkvæmt þessu get ég fundið fullkomið par með Vog Heart en góða blöndu með fisk, Bogamanni og Vatnsbera. En ég passa alls ekki  með Hrút eða Nauti hehe, var nú búin að komast að því sjálf. 

 Og fyrir þig mín kæra vinkona er hið fullkomna par með Meyju Heart eða öðrum fisk, já nú verðuru bara að fara að spyrja gæjana .  Þú færð 2 merki til að velja úr.  Og svo ertu með góða blöndu við Vog , sporðdreka og Steingeit.  Vó eins gott að þú stelir ekki Voginni minni , en þú hefir úr nógu að velja.   Og þú passar alls ekki með NAuti, Krabba,Ljóni eða Bogamanni.

 Og já Trommari ! þú átt að fá þér konu í Bogamanni eða Steingeit

HEHE kannski við ættum að taka blaðsíðuna með og rannsaka þetta aðeins.   Næst þegar okkur vantar verkefni.


já svona til að samræma lærdóm við lífið

þá kemur hér meiri speki í bókinni Tilfinningagreind

Greindarvísitala og tilfinningagreind eru ekki andstæður heldur aðgreindi eiginleikar búa nú flestir yfir hvoru tveggja.  

 En dæmigerðar konur með háa greindarvísitölu eru gæddar því vitsumnalega sjálfstrausti sem við er að búast. Þær eiga auðvelt með að tjá hugsanir sína, hafa vitsunaleg viðfangsefni í hávegum og eiga sér margvísleg andleg og listræn hugðaefni. Þær hafa tilhneigingu til innhveefu, kvíða, heilabrota og samviskubits og hika við að láta reiði sína í ljós opinskátt.

En dæmigerðar konur sem eru greindar tilfinningalega eru yfirleitt ákveðnar í framgöngu og ófeimnar við að láta í ljós tilfinningar. Þær hafa sjálfstraust, eru ánægðar með sig og sjá tilgang með lífi sínu.  Á sama hátt ogkarlar í hliðstæðum hópi eru þær félagslyndar og mannblendnar.  Þær eiga auðvelt með að tja´sig tilfinningalega , auk þess sem þær þola streitu tiltölulega vel.Félagslegt jafnvægi auðveldar þeim að nálgast annað fólk.  Sjálfstraustið gerir það að verkum að þær geta verið gáksafullar, hispurslausar og íhræddar við holdlegar upplifanir. Andstætt konum sem eru aðeins greindar vitsmunalega finna þær sjaldan fyrir kvíða eða sektarkennd, og þeim hættir ekki heldur til þess að sökkva sér í dapurleg heilabrot.

Þessar mannlýsingar eru öfgakenndar. Allir eru í senn gæddir tilfinningalegri og vitsmunalegri greind, í mismunandi miklum mæli.  Af þessu tvennu er það þó tilfinningalega greindin sem leggur mun fremur til þá eiginleika sem gera okkur mennsk.

 

Ég held að við séum nú bara með hæfilega vel skammtað úr hvorum hóp Happy


kertaljós og brúnkukrem....

 

Elska þenna mikla vetur sem er búinn að vera...og líður hálfpartin illa yfir því að snjórinn sé að fara að yfirgefa mig. Við erum búin að eiga góðar stundir saman og svosem ekkert alvarlegt sem hefur komið upp á hjá okkur.   Það er bara ekki eins að kveikja á kertum þegar það er rok og rigning úti. Enda hef ég aldrei náð góðu sambandi við rigninguna, hún gerir mig alltaf svo blauta. Og það veit sá sem allt veit að ég er ekkert tilbúin að vera mikið blaut alltaf.  Fékk stígvél til afnota, fór í þau í tvo daga, þá hættum við saman. Þetta var bara rugl. þau svo að þau hafi haldið mér þurri á tánum þá létu þau mér ekki líða vel, og það er ekkert gaman að vera þur og illa liðin.  

  Svo  berum bara á okkur brúnkukremið, leyfum okkur að vera soldið blautar, látum okkur líða vel og gerum það sem þarf að gera.

Ps....  me like your new name Tounge

McFlottirass....(sem er í raun ekkert með flottann rass..FootinMouth......kaldhæðni sjáið til)


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband