Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Hæ frá Saklausu daðurdrósinni

komin í sparikjólinn og tilbúin að taka á móti nýju ári með miklu fjöri, sjáumst á balli. Gleðilegt nýtt ár.

....

 

já kvöldið fór í að borða ,, drekkk,, spjalla,, dansa,, ballið var fínt,, dönsuðum, borðuðum sleikjó,, og höfðum gaman,, ekkerhöstl,,því þetta voru jú bara eintómir grundfirðingar,, bara svona létt og skemmtilegt spjall og áramótakossar.  Nú eru þessu ljúfu dögum að ljúka,, þeir hafa svo sannarlega verið ljúfir og góð áminning hvernig líf án skóla var,  já alls ekki krefjandi ,, svo að þetta var voða gott að fá svona gott frí til að slaka á og gleyma hvað það er skratti erfitt að vera í fullu námi með vinnu og heimilishaldi og barnauppeldi en þar sem barnauppeldið er það eina  sem var krefjandi í mínu lífi,, þá er ég ánægð með skólann og hlakka bara til að byrja aftur,,   því þegar maður er í svona vinnu sem krefst lítils af heilastarfsemi  þá er gott að vera í námi sem kresft svaka mikils af heilstarfseminni, og sérstaklega skemmtilegt þegar maður fær góðar einkunnir til staðfestingar á að heilinn sé að standa sig hehehe ,, bull bull,, já við vinkonurnar erum orðnar svo stilltar upp á síðkastið að það er ekkert krassandi um að vera hér.  En þurfum að fara að gera e-h í því,, skreppa eitt djamm út fyrir bæjarmörkin,, höfum það í huga að koma því að sem fyrst.  Fáum okkur bara íbúð yfir nótt og tökum djamm.  Þar sem við getum fundið nýtt spennandi og óspennandi fólk til að rugla með.  Wink


jæja þá er það að skella á ...... nýja árið

Var að vinna á Kráku á föst. í plebbaveislu, fór á Kaffi og drakk einn kaffi eftir vinnu í Kráku um 3 leytið og svo heim að sofa.  En það verður meira stuð annað kvöld,  áramótagleði.  Matur hjá mömmu svo hittumst við ,, er það ekki vinkona? Förum í kjól og dönsum fyrir nýju ári.

jæja....

Tvær blogg færslur í röð frá þér góða mín. Nú er eitthvað um að ske. Er bara jól og svaka mikill tími til að blogga. Ég vona að þú hafir verið sátt við kattamatinn sem ég gaf þér....   heh....en svo já, ég bar messa og messa...  ekkert annað að gera.  Og þessi Þórir hann er bara uuu...  hvað segir maður... já alveg rétt, hann er vinur minn.....eða svona því sem næst..... nenni ekki meira..  fékk fullt af geðveikum gjöfum, takk fyrir mig...  bæ

McFLottirass


yndislegu jól og mögnuð messa

já ég skellti mér í messu í gær kl 18 á aðfangadag, vinkonan syngur þar eins og engill Halo og brósi var organisti þessa messu.  En það sem var magnaðast að í miðri messu skall á með eldingum og þrumum, slydda með en að messu lokinni var bara aftur komið jólaveður, allt hvítt, logn og tunglið skein skært.    Maturinn hjá mömmu klikkaði ekki og svo fékk ég fullt af flottum pökkum, svaf út í morgun og nú erum við mæðginin að leika með nýja dótið og koma því fyrir.  Í kvöld er svo jólamatur hjá ömmu, en hvað með spil eftir það, og á morgun. Annað kvöld dett ég úr mömmugírnum til sunnudags.  Höfum spilakvöld.  EN það er líka vinna á fimmt og föst.  Svo koma áramótin með tilheyrandi fjöri og djammi. 

skatan

já there´s something about the skata,, það bara er ekki Þorláksmessa án hennar, þó maður píni í sig nettum bita þá er það bara hefðin og henni skal maður halda  Smile  fylltum svo uppí með hangikjeti og rúgbrauði.  Þetta var nú aldeilis fínt að við skildum nú loksins hafa það af að hittast  með krakkana . Og kíkja í smá heimsókn hehe, þetta er nú voða kósý helgi,, skreyttum tréð í morgun mæðginin. Svo bara göngutúr í þessu fallega jólaveðri snjór og logn ,alveg eftir uppskriftinni að góðum jólum.  Fyrir hádegi þarf maður svo að henda síðasta kortinu í póst og fara í jólabaðið ,, svo mega jólin bara koma.  Hlakka svo til að borða jólamatinn hjá mömmu, humm já ég lofaði víst brósa að gera sítrónufromage.  Og opna pakka og kort og borða nammi og spila.  Svo mikill fjölskyldutími.  Íbúðin mín er svo fín, angandi af greni, allt skreytt með gömlu jólaskrauti,  var svo heppin að fá góða hjálp við að skipta út rimlagardínunum og ganga frá hátalarasnúrunum svo nú er ekkert drasl að þvælast fyrir mér.  Ég bara get setið í sófanum og gert ekkert og sé ekkert sem ég þarf að gera,, góð tilfinning.  Eigiði yndisleg jól vinir og hinir.  Það ætla ég svo sannarlega að gera.  Kissing kveðja  Saklausa jólastelpan

Jólin jólin

 

 

Kom heim til mömmu á þorláksmessu, og fólk ekki alveg ánægt með lyktina af mér.  Við fórum nefnilega vinkonunar með krakkana okkar á skötuhlaðborð í Krákunni.  Litli guttinn hrækti nú bara út úr sér sínum fiskbita, og daman mín vildi ekki einu sinni smakka.  Get kannski alveg skilið þau, ég borðaði þetta nú bara til að taka þátt í hefðum.  Fannst þetta ekkert rosalega gott, en eitthvað við þetta.  Jólin eru á næsta leiti, og þau koma bara.  Voða gamann í vinnunni nóg að gera og allir í svo góðu skapi.  Er það ekki þetta sem jólin snúast um,  að vera með vinum og vandamönnum og gleðja aðra með brosi og hlýjum orðum, ég held það. 

Gleðileg jól

McFlottirass


já fórum á ball

og það var svosem í lagi, en ekkert spennandi fólk, fyrir utan okkur,  aðallega lítil börn úr hólminum.  Kvöddumst bara að balli loknu með tilhlökkun yfir náttfatadegi á morgun. Já jólin eru samasem náttfatadagar og sofa og borða og vera með fjölskyldunni.  Voða kósý bara.  Stefnum á spilakvöld á jóladag eða annan.  Miss Mc flottirass var e-h að röfla yfir því að ég bloggi of lítið en það eru bara svoleiðis dagar núna,, allt í rólegheitum og ekkert að gerast svona til að tala um.  ekki hjá mér alla vega.. Bara að njóta þess að vera í fríi frá skólanum en það skellur svo allt aftur á þann 7. jan. úffpúff. kveðja sú algjörlega alltof saklausa þessa dagana

Jólin bara....

alveg að koma.....en ekki ég, langt í það sennilega....crap...heh..  jæja það verður bara  að hafa það. Ég verð samt að halda áfram að æfa mig sko.  Það er dansiball á laugardaginn, ég veit ekki með ykkur en ég verð það, sennilega vel í því.   Er samt að vinna öll jólin, held það séu 3 dagar sem ég fæ frí....  2 þeirrra er lokað hjá okkur...   ég hef svosem ekki verið að lenda í neinu sem ætti að lenda hér.  Það er bara búin að vera vinna, þrífa, skreyta, jólapakkast oþh.  Langar núna í svona spila, rauðvín, ostakvöld, er ekki farin að koma tími á það eða ??....

 

kv  McFlottirass


Já emitt sko.....

 

Fór til reykjavíkur um helgina, þið vitið, til að versla jólin og sona. Mín ætlaði nú aldeilis að rasa út um kvöldið en ég endaði á hálfum bjór.  Eitt sniðugt reyndar, fór í heimsókn til vinar míns og fór að pissa........sem væri nú ekki frásögu nema hvað ... um nóttina ..eitthvað um 4 leytið fæ ég hringingu....  og eypað á mig "HERRU fröken.....  HVAÐ Á ÉG AÐ ÞURFA AÐ SEGJA ÞETTA OFT, ÞEGAR ÞÚ KEMUR AÐ HEIMSÆKJA MIG, OG FÆRÐ AÐ NOTA KLÓSETTIÐ MITT, ÞÁ SKALTU EKKI LÁTA ÞÉR DETTA ÞAÐ Í HUG AÐ LOKA ÞVÍ.  ÞÚ KEMUR HEIM TIL MÍN Á MORGUN OG ÞRÍFUR, OG EKKERT MEÐ ÞAÐ!!!"  Svo skellir hann bara á, og ég alveg miður mín yfir þessum öskrum frá honum. Svo fattaði ég að kall greyið hafði farið svefndrukkinn fram að pissa og ekkert hirt um eitt né neitt, og pissað bara eins og klósetttið kom fyrir og það þýddi bara piss útum allt.  Ég komst ekkert að þrífa, og datt ekki í hug að láta bjóða mér svona framkomu.  Svo ég fór heim til hans seinnipartinn og meðan hann var að borða cocoa puff fór ég inn á klósett og tók bara setuna af, fór með hana inn í þvottahús, ég efast um að hann sé búinn að taka eftir því, vegna þess að ég hef ekkert heyrt frá honum síðan ég fór út frá honum þennan dag, og hann var ekki búinn að sjá þetta þá..................any way.....  ....oji er orðin eitthvað svo góð.....  jæja, það verður að hafa það, geri eitthvað af mér milli jóla og nýárs......heh

 

kv McFlottirass

 


jólagleði

LOKSINS skólajólafrí , þvílík sæla.  Tvær vinkonur litu við á fimmt,kvöld og við stútuðm rauðvínsflösku sem ég fékk í leynivinagjöf í vinnunni fyrr um daginn.  Núna er bara kósý helgi með syninum. En reyndar búin að ganga fram af mér með stórhreingerningu í allan dag. En nú er allt skínandi og útilykt af sænginni, gerist ekki betra.  Hvernig væri að kíkja í heimsókn ég á vín og osta,,  Grin mmmmmm eintóm jólagleði

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband