Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007
31.12.2007 | 23:36
Hæ frá Saklausu daðurdrósinni
komin í sparikjólinn og tilbúin að taka á móti nýju ári með miklu fjöri, sjáumst á balli. Gleðilegt nýtt ár.
....
já kvöldið fór í að borða ,, drekkk,, spjalla,, dansa,, ballið var fínt,, dönsuðum, borðuðum sleikjó,, og höfðum gaman,, ekkerhöstl,,því þetta voru jú bara eintómir grundfirðingar,, bara svona létt og skemmtilegt spjall og áramótakossar. Nú eru þessu ljúfu dögum að ljúka,, þeir hafa svo sannarlega verið ljúfir og góð áminning hvernig líf án skóla var, já alls ekki krefjandi ,, svo að þetta var voða gott að fá svona gott frí til að slaka á og gleyma hvað það er skratti erfitt að vera í fullu námi með vinnu og heimilishaldi og barnauppeldi en þar sem barnauppeldið er það eina sem var krefjandi í mínu lífi,, þá er ég ánægð með skólann og hlakka bara til að byrja aftur,, því þegar maður er í svona vinnu sem krefst lítils af heilastarfsemi þá er gott að vera í námi sem kresft svaka mikils af heilstarfseminni, og sérstaklega skemmtilegt þegar maður fær góðar einkunnir til staðfestingar á að heilinn sé að standa sig hehehe ,, bull bull,, já við vinkonurnar erum orðnar svo stilltar upp á síðkastið að það er ekkert krassandi um að vera hér. En þurfum að fara að gera e-h í því,, skreppa eitt djamm út fyrir bæjarmörkin,, höfum það í huga að koma því að sem fyrst. Fáum okkur bara íbúð yfir nótt og tökum djamm. Þar sem við getum fundið nýtt spennandi og óspennandi fólk til að rugla með.
Dægurmál | Breytt 1.1.2008 kl. 16:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2007 | 23:37
jæja þá er það að skella á ...... nýja árið
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.12.2007 | 14:33
jæja....
Tvær blogg færslur í röð frá þér góða mín. Nú er eitthvað um að ske. Er bara jól og svaka mikill tími til að blogga. Ég vona að þú hafir verið sátt við kattamatinn sem ég gaf þér.... heh....en svo já, ég bar messa og messa... ekkert annað að gera. Og þessi Þórir hann er bara uuu... hvað segir maður... já alveg rétt, hann er vinur minn.....eða svona því sem næst..... nenni ekki meira.. fékk fullt af geðveikum gjöfum, takk fyrir mig... bæ
McFLottirass
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.12.2007 | 12:55
yndislegu jól og mögnuð messa

Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.12.2007 | 00:03
skatan


Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.12.2007 | 14:50
Jólin jólin
Kom heim til mömmu á þorláksmessu, og fólk ekki alveg ánægt með lyktina af mér. Við fórum nefnilega vinkonunar með krakkana okkar á skötuhlaðborð í Krákunni. Litli guttinn hrækti nú bara út úr sér sínum fiskbita, og daman mín vildi ekki einu sinni smakka. Get kannski alveg skilið þau, ég borðaði þetta nú bara til að taka þátt í hefðum. Fannst þetta ekkert rosalega gott, en eitthvað við þetta. Jólin eru á næsta leiti, og þau koma bara. Voða gamann í vinnunni nóg að gera og allir í svo góðu skapi. Er það ekki þetta sem jólin snúast um, að vera með vinum og vandamönnum og gleðja aðra með brosi og hlýjum orðum, ég held það.
Gleðileg jól
McFlottirass
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.12.2007 | 04:05
já fórum á ball
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.12.2007 | 19:18
Jólin bara....
alveg að koma.....en ekki ég, langt í það sennilega....crap...heh.. jæja það verður bara að hafa það. Ég verð samt að halda áfram að æfa mig sko. Það er dansiball á laugardaginn, ég veit ekki með ykkur en ég verð það, sennilega vel í því. Er samt að vinna öll jólin, held það séu 3 dagar sem ég fæ frí.... 2 þeirrra er lokað hjá okkur... ég hef svosem ekki verið að lenda í neinu sem ætti að lenda hér. Það er bara búin að vera vinna, þrífa, skreyta, jólapakkast oþh. Langar núna í svona spila, rauðvín, ostakvöld, er ekki farin að koma tími á það eða ??....
kv McFlottirass
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.12.2007 | 19:46
Já emitt sko.....
Fór til reykjavíkur um helgina, þið vitið, til að versla jólin og sona. Mín ætlaði nú aldeilis að rasa út um kvöldið en ég endaði á hálfum bjór. Eitt sniðugt reyndar, fór í heimsókn til vinar míns og fór að pissa........sem væri nú ekki frásögu nema hvað ... um nóttina ..eitthvað um 4 leytið fæ ég hringingu.... og eypað á mig "HERRU fröken..... HVAÐ Á ÉG AÐ ÞURFA AÐ SEGJA ÞETTA OFT, ÞEGAR ÞÚ KEMUR AÐ HEIMSÆKJA MIG, OG FÆRÐ AÐ NOTA KLÓSETTIÐ MITT, ÞÁ SKALTU EKKI LÁTA ÞÉR DETTA ÞAÐ Í HUG AÐ LOKA ÞVÍ. ÞÚ KEMUR HEIM TIL MÍN Á MORGUN OG ÞRÍFUR, OG EKKERT MEÐ ÞAÐ!!!" Svo skellir hann bara á, og ég alveg miður mín yfir þessum öskrum frá honum. Svo fattaði ég að kall greyið hafði farið svefndrukkinn fram að pissa og ekkert hirt um eitt né neitt, og pissað bara eins og klósetttið kom fyrir og það þýddi bara piss útum allt. Ég komst ekkert að þrífa, og datt ekki í hug að láta bjóða mér svona framkomu. Svo ég fór heim til hans seinnipartinn og meðan hann var að borða cocoa puff fór ég inn á klósett og tók bara setuna af, fór með hana inn í þvottahús, ég efast um að hann sé búinn að taka eftir því, vegna þess að ég hef ekkert heyrt frá honum síðan ég fór út frá honum þennan dag, og hann var ekki búinn að sjá þetta þá..................any way..... ....oji er orðin eitthvað svo góð..... jæja, það verður að hafa það, geri eitthvað af mér milli jóla og nýárs......heh
kv McFlottirass
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2007 | 19:13
jólagleði

Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)