Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

LÆri læRi...

 

Eitt próf búið, og eitt eftir svo er bara komið sumar hjá mér.           

Ég er búin að selja litlu tíkina mína, nú á ég engan bíl....  en alveg fjóra til afnota...  geri aðrir betur.  Svo er viðskiptavitið svo mikið hjá mér að ég seldi bílinn til mannsins sem keypti hann handa mér, og alveg helmingi dýrari sko.  Ég var í fríi frá vinnu um helgina, og tók prófið á laugardeginum og gekk bara vel held ég. Við fórum svo í bjórdrykkju systurnar á krákunni og hittum þar marga ágæta.  Svo var farið aftur í krákuna í hádeginu á sunnudegi, og ég sat þar til að verða fimm um daginn.

Litla mín lasin bara og ég komin með fjölþjálfann heim.. nú skal verða gamann....

kv McFlottirass


fínt fimmtudagskveld

það síðasta.  Krákukvöld,, að hlusta á Jazz.  Fullt af fólki að hlusta,,sem hvarf svo undarlega hratt um leið og síðastast lagið og tónlistamennirnir þökkuðu fyrir sig.  En við vinkonurnar sátum nú rólegar enda ekki búnar með' bjórinn.  Svo komu þrír spilarar og settust hjá okkur, Trommarinn og tveir gamlir líka tónókarlar.  spjall og bull.  Með Leyfi.  Gaman að því en ekki Leyfi og svo heim að sofa.  Ágætis tilbreyting á hversdeginum.  Kv. S. D.

Þarf frí til að jafna mig eftir fríið

Já gærkvöldið, reyndum að finna djamm en gekk alls ekki. Fullorðna fólkið bara heima eða að heiman alla vega enginn að djamma í Grundó litla fólkið á djammi á Skyldi.  Of ungt fyrir okkur þar. Tókum bara rúnt vinkonurnar og svo heim að sofa.  En já það er nú ekki bara einstök færsla heldur síðan okkar yfirleitt sem er EKKI fyrir fólk sem dæmir aðra fyrir hvers konar hegðun sem hver finnur uppá.  Fólk ætti ekki bara ALdrei að dæma aðra fyrir ósæmilega heldur taka þátt í því að hegða sér ósæmilega einstaka sinnum þó að dags daglega sé það að fara eftir hinum almennu hegðunarreglum.  Það er lagið til að hafa gaman af lífinu.  Woundering   HEHE en jæja já Páskafríð mitt búið að vera tómt púl. Skírdagur, vinna aukavinnu. Föstudagurinn langi þrífa heimilið og þvo þvott svo fór ég á ættaróðalið með litla guttann og þar var familían í vorþrifum og hörkupúli við viðgerðir á húsinu.  Helgin mín fór að mestu í að skafa af mörg lög af veggfóðri. Já mér er alveg sama þó það sé aftur í tísku EKKI Fá þér Veggfóður. Og nú er skrokkurinn í slæmu ástandi. öll liðamót í stirð og aum. Vöðvar bólgnir. Alveg gjörsamlega búin á því.  Vantar að fá frí til að jafna mig eftir páskafríið.  Sleeping   Kv. S. D.

Er svooo dugleg.....

Ekki fyrir viðkvæma eða fólk sem dæmir annað fólk fyrir ósæmilega hegðun !!!!!!!

Blush

ERfiður dagur í vinnunni á laaugardaginn mar...... vá...eigum við að ræða það eitthvað....

 

Við fórum semsagt systurnar bara á krákunna með bróður okkar og mágkonu.  Það var nú ekki svakalegt stuð svona frameftir kvöldi. En það fór bara allt að gera sig í kringum 3-hálf fjögur.....  allir orðnir svakalega skemmtilegir og alltof fullir..... piff....  who cares.....   Við fórum svo í patrý, en í þeirri íbúð sem við fórum í partýiið í var ekki tónlist, það var ekki sófi, það var eiginlega ekki neitt nema borvél, tvær flöskur og fólkið.  Og hvað er hægt að gera við þetta í partýii....jú bíðiði við....ég snillingurinn leitaði í minni partý reynslu og uppsprettan er gríðaleg á köflum,  ég mundi eftir einum vinaþætti og hvað.....  Ég lét fólkið bara fara í flöskustút, eftir að ég bauð mig fram við að klára úr annari flöskunni gátum við hætt að nota borvélina í það.   Þetta var svaka spes sko....  En svona undir lokin þegar ég var næstum búin með einn tópas pela ALEIN, (já svona er ég nú dugleg)   Þá átti ég einhvern veginn alltaf að gera, og sá sem flöskustútur lenti á átti alltaf að kyssa mig....heh...  en samt bara ef það var einn ákveðinn aðili....og ég var nú bara ekkert feimin við að láta það í ljós..... kannski útaf þessu hættu bara allir í flöskustút, okkur var hent út úr þessari tómu íbúð, og ætluðum aldeilis að finna okkur annað partý. 

 ...  takk fyrir mig.....Sleeping

McFlottirass.


life is like a box of chocolate....

 

Slitin naglabönd, og varaþurrkur er það sem þjakar mig mest núna, svo gott er lífið eitthvað.  Fór og söng við messu í gær, (skírdag) svo aftur í dag (föstudaginn langa)  .  Svo bara svaka frí í dag, ekkert að gera, þá meina ég ekkert....  Óla fór til pabba síns um hádegið svo ég er bara búin að vera að dingla mér. Ætlum að reyna að finna eitthvað að gera í kvöld við systurnar. Erfitt er um slíkt að spá.  kannski verður ekki neitt.  Og hvar eru páskalögin, fyrir utan sálmana þá meina ég.....  kannski ekki erfitt að henda saman einu....

jæja, það kemur ekki alveg strax, en ég set það inn um leið og það gerist....

kv McFlottirass...


myrkrið hellist yfir mig...blablabla...

 

2.kíló sem ég fékk um daginn, eigum við að ræða það eitthvað.  Hér þjóta skýinn framhjá eins og þau vilji ekki vera hjá mér, þau komu í morgun og ég horfði á eftir þeim út fjörðin.  Amma kom líka heim í gær. Fór niðrí Ildu á netið. held ég sé búin að ver eitthvað ófrísk, en það skiptir kannski ekki svo miklu máli ég sef þá bara meira.   Festist í Borganesi á mánudaginn, púff....   bilaður bíll leigu-bíll, þið vitið..ekki svona taxi heldur bílaleigubíll.  Solles heim. svo Lær, enda próf  strax eftir páska, námið er bara búið fyrir utan þau, svo á ég þá bara eina önn eftir. ég ætla að finna mér eitthvað annað að læra eftir það. kannski bara æji veit ekki, googla það bara. Góða nótt

McFlottirass


Sveitinn....

 

Já lífið í sveitinni hefur sinn vanagang, ég er alltaf 7 tíma á dag í þrælabúðinni.....  svo sit ég við að læra...  stundum fer ég að syngja líka.....   svo er ég í megrun...vona að hún endist í meira en 3 daga í þetta skiptið.....  er svo feitur auli eitthvað.    En allavega, nú er ég búin með öll verkefnaskil í skólanum mínum, bara prófin eftir í endaðan mars og byrjun apríl....

Og aldrei aftur skal ég lifa eins helgi eins og síðustu...púff púff og ðökk. Þetta var ágætt en samt ekki sko...heh...  keilan var fín, verst að sæta stelpan var lasin og sú litla hafi þurft að vinna, kannski hefði þetta farið öðruvísi ef við hefðum geta farið að dansa eitthvað.

Páskarnir verða sennilega bara vinna, læra og syngja í messum...  ætla ekki einu sinni að fá mér páskaegg, nema kannski spælt sko.....

kv McFlottirass

 


Hæ frá Reykjavík

humm eru gellurnar eitthvað að slappast í bloggfærslum,, en samt miðað við þessa fáu bloggvini erum við að standa okkur fínt.  Fórum sem sagt til Rvíkur. 'I keilu og miðbæjarrölt svo sem ekkert meir um það að segja.  Nema ég fór snemma heim var eitthvað slöpp og litla systirin, hún þurfti að vinna snemma næsta morgunn .  Mcflottirass var aðeins öflugri og fékk óskarinn fyrir djammframmistöðu. ég er nú í skólanum í Rvk, bara gaman að því.  Meðleigjandinn hélt parý í gærkvöld svo það var fínt, eitthvað samansafn af nemendum í þroskaþjálfanámi.  Síðasti Gestur fór kl 2. vorum nú reyndar dauðfegnar að komast í bælið þá. Úthaldið ekki betra á miðvikudagskveldi.  Enda nóg að gera í náminu.  En bið bara að heilsa kveðja Saklausa skólastúlkan

lalalalalallala

Söngstund á Kráku í gærkvöld og langt fram á nótt.  Stefnan að fara til Rvk í dag og gera e-h saman í kveld. Svo er bara skolllinn á skóli hjá mér í viku svo ég verð í rvk í heila viku, shit hvða ég verð komin með ógeð á rvík hangsi þá.  Sjáumst bara í miðbæ Rvk í kvöld         

kveðja saklausa skólastúlkan


27 í dag

Hún á afmæli í dag hún á afmæli í dag hún á afmæli McFlottirass

hún á afmæli í dag VEI klappklapp  Smile


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband