20.11.2007 | 01:02
Viðsættanlegt ?
Mér fannst bara ballið vera fínt, við dönsuðum, vorum heilar í hausnum og ekkert kjaftæði. Væri alveg til í að geta verið svona stillt og prúð á fleiri böllum hérna heima. Mig langar reyndar ofboðslega mikið til að fara að skemmta mér með fólkinu sem ég er mest að umgangast og klæða mig upp í mitt fínasta púss, ekki oft sem maður fær tækifæri til að gera það, en bráðum koma blessuð jólin og kannski verður bara kjóllinn að bíða þangað til. Hver veit ?
Athugasemdir
hva segiru vinkona,, hvar langar þig að skemmta þér, í fínum kjól????,,, humm kannski það verði ekkert tilefni fyrr en á áramótum,,, það er nú alveg á planinu hjá mér að fara að kaupa svona fínan kjól. En alla vega ég er að fara í bæinn á lau. e-h smá djamm, viltu koma með????,, er með íbúðina,,svo er skóli hjá mér á mán... Spáðu í því,,, mér þætti mun meira gaman ef þú kæmir líka.
saklausa daðurdrósin (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 23:44
jájá, er þetta orðið svona, okkar samskipti nær engöngu á blogginu eða sms.... kjánalegt.. jæja, ég skal sjá hvað ég get gert, langar alveg til að taka smá rvk djamm, það er ansi langt síðan síðast
gellurnar, 22.11.2007 kl. 17:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.