Kæra dagbók

Tounge á aðfaranótt fimmtudags. kl. 4 hörkuðu gellurnar sér á fætur í gamalli íbúð í miðbæ Reykjavíkur, ég var að deyja úr beinverkjum og slappleika af völdum streptakokka. Hálftíma síðar mætti Trommarinn á svæðið og brunað  var út úr Reykjavíkinni , á leiðinni hljóp svartur köttur yfir götuna fyrir framan okkur That´s a sign for luck ,, RIght ??? En flugferðin gekk fínt ég , við gellurnar vorum alveg að njóta flugtaksins ,,svoo skemmtileg þessi tilfinning þegar flugvélin gefur allt í botn og tekst á loft. Hótel Astoria stóð alveg undir væntingum og á svaka fínum stað ,, allt það helsta í göngufæri. Við þurftum nú að byrja á smá "LEGGninu" í 3 klst. Svo lagningu í 15 mín. og þá vorum við ready to Walk down the STRIK. Bar og bjór , fundum okkur svo Ítalskan veitingastað, með einstaklega skemmtilegum þjónum. Vesuvio fær hæstu einkunn fyrir það, þegar Trommarinn bað um the bill spurði þjónninn " small, medium, large" og ég sprakk úr hlátri en TM (=Trukkarmellan)bað um small. Þjónninn kom svo skömmu síðar með svona reikningamöppu (þessar litlu lokuðu)  og þegar við opnuðum hana til að líta á miðann þá sprungum við öll úr hlátri, þjóninn hafði brotið reikninginn saman mörgum sinnum svo hann sást varla aftan við klemmuna. Eftir þetta var bara hangsað á sóðalegum Írskum pöb á Strikinu með lifandi tónlist, en fórum nú snemma að sofa þetta kvöldið , ég var heldur ekkert í bjórnum, en þrælslöpp í Íbúfenvímu.

Dagur 2 Föstudagur 

Vöknuðum hálf10 til að ná morgunmat Hótelsins, svo var tekin verslunarleiðangur ( fyrir mig  aðallega finnst það svoldið gaman) fórum í Fisketorvet, Fields og Stroget. Trommarinn fór nú reyndar og lagði sig meðan við kíktum á síðastnefnda. Svo fórum var sett upp flottasta gellulúkkið og fórum með Trommaranum á steikhús sem er í uppáhaldi hjá honum. Gæddum okkur á piparsteik og ógeðslegasta bjór EVer. Eftir það var bar og bjór og svo leituðum við uppi næturkúbb með háværri teknótónlist. Svaka stuð þar, nú var bara hellt í sig og svo fóru THE DANCERs auðvitað að dansa. Trommarinn er nú e-h minna í því og lét sig hverfa. Við vorum nú ekki lengi  tvær að dansa , það komu 2 gæjar og rifu okkur í sitthvora áttina og við dönsuðum og drukkum með þeim þar til okkur var sópað út rétt fyrir 5. Sá sem dansaði meira við mig sagðist vera frá Brasilíu en hafa búið í Danmörku í 16 ár. Flottur strákur. En hinn geggjaður dansari og ég læt TM um að lýsa þeim betur þessum gæjum hún horfði meira á þá og talaði meira við þá haha, bullaði á dönsku , ensku og íslensku við þá. Það var hið besta skemmtiatriði að fylgjast með. Svo röltum við einn hring með þeim losuðum okkur við þá og töltum upp á hótel um 6. Skemmtileg nótt.

 Laugardagur

*Bara skemmtilegur dagur, vöknuðum nú bara eftir hádegi, fórum þá á rölt í leit að bakaríi fyrir mig, langaði svo í rúnstykki með osti. Svo Bar og Bjór fyrir hin 2. Þá var það TIVOLI,, GAMANGAMAN,, Trommarinn fékk nú nóg eftir fyrsta tæki en beið þolinmóður meðan litlu stelpurna kláruða og leika sér í öllum hröðustu og hæstu tækjum sem þær fundu. Þegar maginn fór að kvarta skelltum við okkur á Ítalíu í pizzu og fengum fallegt útsýni í kaupbæti, margir sætir ítalskir þjónar þar. Vorum um 5-6 klst. á TIVOLI svæðinu, um 23.00 var öllu lokað og Big Band tónleikar hafnir á sviðinu og í kjölfarið kom þessi glæsilega flugeldasýning með undirleik. Svo eftir að hafa fengið svona góðan skammt af endorfíni og adrenalíni þá var mikil stemming í félögunum, sem skelltu sér á pöb með DJ og löngum opnunartíma en þessi var með miklu skemmtilegri lög , sem hægt var að syngja og dilla sér með. Við plöntuðum okkur í við borð útí horni og sátum með drykki og spjölluðum , gellurnar stukku svo á dansgólfið þegar lög í uppáhaldi komu. TM lenti í litlum kolsvörtum skratta með dredda, sem ætlaði að fá að dansa við hana, en var nú ekki samþykkur, fengum nú reyndar nóg af óspennandi danstilboðum hjá litlum, ljótum eða gömlum körlum. En þá var gott að setjast bara aftur við borðið, en svo þegar Trommarinn fór að lúlla þá misstum við fljótt borðið og dönsuðum bara útí eitt eins og við erum vanar en urðum þá að velja okkur dansfélaga til að losna undan slæmum tilboðum. Ég endaði að leika á dansgólfinu með Íra sem býr í Hollandi en TM í Dirty Dancing við  Marokkógaur ( kemur á óvart,NOT) sem býr í Köben, og er ástsjúkur af henni núna InLove . Svo var tekið smá rölt eftir lokun og losað sig við þessa fylgifiskana og farið heim að lúlla

 Sunnudagur

ekki fengum við nú að lúlla lengi,, því út skal fara af Hótelinu kl 12,, það  hafðist og pizzuhlaðborð á staðnum fyrir neðan, svo fór Trommarinn í ættingjaheimsókn en gellurnar, á röltið enn einu sinni á Strikinu,, settumst á kaffihús og létum tímann líða. Svo fór að rigna en við gátum svo sem ekki kvartað búin að hafa sól og blíðu allan tímann. Við hlupum og keyptum okkur regnhlífar til að komast aftur upp Strikið, en demban var svo mikil að við fórum inn á pöb og sátum þar á sötri, þangað kom  svo ástsjúki gaurinn hennar TM til að hitta okkur smá stund.  Svo var bara komin tími á flug og ég var svo heppin að fá besta hugsanlega sætið fremst í vélinni og við glugga. Var alveg í skýjunum (Bókstaflega Grin ) Það var mikill svefngalsi í félögunum alla heimferðina og þó 5 aurabrandararnir hafi verið áberandi alla ferðina þá flugu þeir í annarri hvorri setningu þarna.

Takk fyrir frábæra ferð og einstaklega skemmtilegan félagsskap,, kveðja Saklausa daðurdrósin

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk sömuleiðis :)

Trommarinn (IP-tala skráð) 25.7.2007 kl. 11:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband